The InnSæi® Signature Námskeiðið

"Ráð Hrundar geta breytt lífi þínu. Á tímum gervigreindar gefur vel þjálfað innsæi þér mikilvægt forskot."Bill George, Harvard prófessor, höfundur True North

Er komin tími til að þjálfa þitt innsæi?

Þau sem vaxa og dafna á tímum gervigreindar og stöðugra breytinga eru þau sem eru með vel þjálfað innsæi - InnSæi.

LogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogoLogo

"Ég kenni fagfólki, frumkvöðlum og stjórnendum að ná meistaratökum á innsæinu, til að efla samstarf, erindi og treysta eigin dómgreind jafnvel á tímum óvissu og mikilla breytinga."

Lærðu að efla þitt forskot á InnSæi® Signature Námskeiðinu

Opnað fyrir umsóknir 24. ágúst 2026

Af hverju InnSæi?

Á tímum stöðugra breytinga, vendipunkta, gervigreindar og mikilla tækifæra, er tímabært að staldra við og tengja við þá hæfni sem nýtist okkur einstaklega vel til ákvarðanatöku á tímum óvissu og breytinga og við höfum öll aðgang að. Innsæi er grunnþáttur í greind okkar. Það er ekki 'mjúkt mál', getspá eða annað orð yfir hvatvísi, hugsanaskekkju eða óskhyggju. Innsæið hefur mikil áhrif á líf okkar, ákvarðanir og störf og á skilið að fá alla okkar athygli.

Við erum að sjá skýr merki í nýjum rannsóknum á leiðtogahæfni og meðal stjórnenda:

því meira sem gervigreindin tekur yfir greiningu og framkvæmd, minnkar traust margra stjórnenda á eigin dómgreind. Hún eykst ekki. Þau taka góðar ákvarðanir en eiga svo erfitt með að færa rök fyrir þeim. Það er ekki skortur á gögnum, heldur vannýting á mikilvægari hæfni sem við búum yfir. Þessa hæfni er vel hægt að þjálfa eins og annað.

InnSæi® er aðferðarfræði sem Hrund Gunnsteinsdóttir hefur þróað fyrir stjórnendur, frumkvöðla og fagfólk á ólíkum sviðum og byggir á yfir tveggja áratuga rannsóknum og hagnýtingu í störfum. InnSæi er ekki íslenska orðið yfir innsæi, en er innblásið af samsetningu þess. InnSæi® gerir okkur kleift að vinna með og skilja það sem við vitum núna úr heimi vísinda og rannsókna um taugavísindin, dómgreind og innsæi. Fá okkar hafa fengið þjálfun í að efla innsæið, skynja tíðarandann, lesa á milli línanna eða ná utan um breytingar sem ekki hafa fests í sessi. Þetta er geta sem við höfum öll, en er í flestum okkar lítið sem ekkert þjálfuð eða notuð.

InnSæi® Signature námskeiðið er fyrir þig ef:

Þú finnur að gervigreindarþróunin er að krefja þig um nýja hluti, og þú vilt efla getu þína til að mæta þeim kröfum.

Þú ert að fara í gegnum mikilvægar breytingar persónulega eða faglega.

Þú veist hvað þú þarft að gera en þú treystir því ekki nægilega vel til að gera eitthvað í því.

Þú ert orðin svo góð/ur í að greina og safna upplýsingum að þú ert hætt/ur að hlusta á það sem þína innri dómgreind.

Þú sérð um að taka ákvarðanir fyrir alla aðra en ekki þær sem þú ein/n getur tekið fyrir þig.

Þú vilt þekkja sjálfa/n þig nógu vel til að það breyti því hvernig þú upplifir þig, í vinnu og heima

Þú spilar þig smátt á því sviði sem þú hefur mest fram að færa .

Þú veist veist þú átt meira í þér en þú hefur sýnt og þig langar að vaxa meira, en þú veist bara ekki hvernig.

Þér finnst þú aftengd/ur sjálfri/um þér.

**The InnSæi Signature Námskeiðið er haldið aðeins einu sinni á ári**

InnSæi® aðferðarfræðin fyrir stjórnendur, fagfólk og leiðtoga í lífi og starfi

Á InnSæi® Signature námskeiðinu lærir þú að byggja sjálfsþekkingu sem mun hafa jákvæð áhrif á þig persónulega og faglega.

Þú eflir dómgreind þína heildrænt: hugvit, tilfinningagreind og líkamlega greind (IQ, EQ and BQ).

'Að leiða innan frá og út', fjallar um að byggja sterkan innri áttavita í lífi og starfi.

Sterkur innri áttaviti á rætur í sterku og vel þjálfuðu innsæi.

Vel þjálfað innsæi er áreiðanlegt og samkvæmt sjálfu sér.

Áreiðanlegt innsæi eflir drifkraft, bætir tengsl,

eftir hugrekki, sköpunarkraft og getuna til að greina upplýsingar og vísbendingar frá upplýsingaóreiðu og hávaða.

InnSæi® Signature námskeiðið

3 lotur byggðar á 3 stoðum aðferðarfræðinnar

Sjórinn innra með þér

Þú lærir að:

Þekkja munstur snemma

Taka eftir fíngerðum breytingum og ofurlitlum merkjum

Efla innsýn utan línulegrar hugsunar

Skilja hvernig innsæið mótast og þróast yfir tíma

Lesa skilaboð innsæis í gegnum allan líkamans til að nema réttu merkin

= Þú eflir getuna til að skynja tíðarandanna, lesa fólk og herbergi, sýna frumkvæði, skapa aðstæður fyrir möguleika, í stað þess að vera í stöðugri viðbragðsstöðu.

Að sjá inn á við

Þú lærir að :

Greina innsæi frá ótta, hugsanaskekkjum og óskhyggju.

Skapa hugarrými og minnka hugrænt álag

Skerpa skýrleika og gera innsæið áreiðanlegt

Greina innri hávaða frá marktækum skilaboðum.

Efla sjálfsþekkingu og heiðarleika gagnvart sjálfinu

Vita hvenær þú getur notað insæið og hvenær ekki

= Þú eflir innsæið og gerir það nákvæmara og áreiðanlegra

Að sjá innan frá og út

Þú lærir að :

Finna út úr hlutunum með sterkum innri áttavita, og vera sjálfri/um þér samkvæm/ur.

Nota saman innsæi og greiningarhugsun, gögn og rökhugsun

Blanda saman og efla ryþmana tvo í InnSæi®:

Innsæi (hratt, ólínulegt, ómeðvitað)

Greining (hæg, skipulögð)

Taka ákvarðanir sem eru bæði strategískar og í samræmi við þín gildi, erindi og reynslu.


= Þú notar og eflir ryþmana tvo og InnSæi® verður grunnstef í lífi og starfi.

InnSæi® Signature námskeiðið er 9-vikna námskeið þar sem þú lærir í eigin tíma og við hittumst í persónu á zoom í bland.

Þú færð þrjá hluti sem flest námskeið bjóða ekki:

27 lyklar að innsæi, lítil skref sem þú tekur í daglegu lífi og starfi sem hafa mikil áhrif.

Sannreynd aðferðarfræði - aðferðir, æfingar og nákvæm verkfæri sem virka fyrir fólk sem lifir annasömu lífi.

Persónuleg nálgun. Níu vikulegir fundir með Hrund og samnemendum. Eftirfylgni sem færi þig til að gera vinnuna.

Hefst 16. september · 9 vikur með vikulegum fundum · 'online' jafningjasamfélag · 12 mánaða aðgangur.

Vikulegir zoom fundir í 9 vikur, á miðvikudögum kl. 12.-13 með Hrund og hópi samnemenda. Fyrsti zoom fundurinn 16. september. Sá síðasti 11. nóvember 2026. Aðgangur að jafningja-netsamfélagi á meðan á námskeiðinu stendur.

Þú býrð til þinn eigin InnSæi® Profíl - Þitt innra GPS, staðsetningarkerfi - sem heldur þér áfram stilltri/um inn á InnSæið löngu eftir að námskeiðinu lýkur, óháð ytri aðstæðum.

Útskriftarskírteini að námskeiði loknu, krafa að þú takir þátt í a.m.k. 80% af zoom fundum. Aðgangur að InnSæi Alumni samfélaginu eftir að námskeiðinu lýkur.

Af hverju ákváðu þau að fara á InnSæi® Signature námskeiðið?

"Ég kom á námskeiðið af því mig langar að ná meiri skýrleika í hugsun, innri ró og finna meiri drifkraft í starfi og lífinu í kringum mig."

"Ég tók nýlega við forstjórastöðu og það eru stórar áskoranir framundan. Ég veit ekki hvernig ég á að finna tíma til að sinna námskeiðinu en þetta hljómar eins og nákvæmlega það sem ég þarf á að halda akkúrat núna."

"Ég las InnSæi bókina og er núna tilbúin til að vinna vinnuna."


"Ég hef verið að fara í gegnum stórar breytingar og langar að átta mig betur í þessu nýja lífi."

"Ég stend frammi fyrir stórum ákvörðunum og þarf leiðsögn og verkfæri til að staðsetja mig."

"Mér líður eins og ég hafi verið á hlaupum sl. ár og er hætt að heyra mína innri rödd."

"Mig langar að staldra við og taka stöðuna á lífi og starfi og leggja línurnar fyrir næsta kafla."

"Ég er að útskrifast á næsta ári og það er margt að togast á í mér varðandi næstu skref. Ég held að þetta námskeið hjálpi

mér að skerpa stefnuna."

Talar eitthvað af þessu til þín?

Þá gæti InnSæi® Signature námskeiðið verið rétta skrefið fyrir þig.

Hæ, ég heiti Hrund

Verðlaunaður stjórnandi og frumkvöðull, stjórnenda- og leiðtogaþjálfi, höfundur og fyrirlesari.

Eftir að hafa starfað og þjónað í yfir 20 ólíkum hlutverk í fjölbreyttum geirum eins og nýsköpun, fjárfestingum, sjálfbærni, uppbyggingastarf eftir stríð, listum, kvikmyndagerð, tölfræði, ákvað ég að breyta til og hætta sem framkvæmdastjóri á Íslandi, selja húsið mitt og fjárfesta tíma og orku í að kenna fólki að virkja og efla InnSæi.

Þessi ákvörðun kom ekki úr lausu lofti. Hún er byggð á yfir 20 ára reynslu af því að vinna með fagfólki, stjórnendum og leiðtogum um allan heim að umbreytingarstjórnun hjá Sameinuðu þjóðunum, Alþjóða efnahagsráðinu, í einkageiranum og opinberum geira. Stærstu rannsóknarverkefnin á bak við þetta námskeið eru þrjú: Ég hannaði og stýrði Prisma-náminu hjá Listaháskóla Íslands, Háskólanum á Bifröst og ReykjavíkurAkademíunni eftir bankahrun, sem var viðurkennt af Norræna ráðinu fyrir svara kalli um breyttar kröfur á vinnumarkaði. Ég skrifaði og meðleikstýrði InnSæi heimildarmyndinni (2016) sem var sýnd um allan heim á Netflix og gaf út bókina mína InnSæi (Bonnier books UK 2024, HarperOne 2025), sem er að koma út á fjölmörgum tungumálum í öllum heimsálfum.

Ég hélt TED fyrirlestur um InnSæi og 'intuition' árið 2024. Ég þróaði InnSæi® aðferðarfræðina til að kenna fagfólki og stjórnendum að ná góðu valdi á innsæinu til að taka þátt í skapa framtíðina og treysta eigin dómgreind, jafnvel á tímum mikillar óvissu.

Ef þú ert tilbúin/n til að efla innsæið og innri áttavita fyrir líf og starf, ertu á réttum stað.

Fleiri ummæli frá þátttakendum í InnSæi® Signature námskeiðinu á íslensku og ensku:

Algengar spurningar:

Hvað er InnSæi® nákvæmlega?

InnSæi® er vörumerkt og viðurkennd aðferðarfræði sem Hrund Gunnsteinsdóttir hefur þróað á yfir 20 ára tímabili og byggir á rannsóknum og hagnýtingu þeirra í bland. InnSæi er ekki það sama og innsæi, íslenska orðið yfir 'intuition', heldur er samsetning orðsins innblástur fyrir hugtakið og aðferðarfærðina. Sjá meira hér.

Hver er munurinn á InnSæi® Signature Námskeiðinu og Lead With Clarity námskeiðinu?

Lead With Clarity námskeiðið er á ensku og alfarið sjálfsnám þar sem þú lærir grunninn að athyglisstjórn, skýrleika í hugsun og innsæi. InnSæi® Signature námskeiðið er kennt á íslensku og þar lærir þú InnSæi aðferðarfræðina í samsettu námkeiði af lifandi fundum með Hrund og hópi samnemenda, á níu vikum og hefur aðgang að námskeiðinu (myndböndum og öðru efni) í 12 mánuði. Hlekkur á Lead With Clarity.

Er námskeiðið á ensku líka?

Já. Enska námskeiðið hefst í sömu viku og íslenska námskeiðið.

Hvað tekur við eftir níu vikur?

Þú hefur aðgang að námskeiðinu í 12 mánuði, þú heldur áfram að vinna með InnSæi® Profílinn, og verður hluti af InnSæi Alumni samfélaginu.

Hvað ef ég missi af zoom fundi?

Þú hefur aðgang að námssvæði og tilheyrandi samfélagi á meðan á námskeiðinu stendur. Þar getur þú hlustað á upptökur af zoom fundum með Hrund og hópnum.

Eru námskeiðagjöld niðurgreidd af stéttarfélögum?

Námskeiðið er styrkthæft hjá Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks, hjá Vinnumálastofnun, hjá starfsmenntunarsjóði VFÍ, hjá VR og fleiri stéttarfélögum. Vinsamlega athugaðu réttindin þín hjá þínu félagi.

Eru námskeiðsgjöld endurgreidd?

Námskeiðsgjöld eru alla jafna ekki endurgreidd. Með skráningu samþykkir þú þessa skilmála.